Thursday, September 07, 2006
jæja gott fólk - þessi blessaða bloggsíða var nú bara hugsuð sem staður fyrir smá fréttir á meðan maður bjó í baunalandinu...þar sem maður er bara mættur á klakann og í skólaprógramm dauðans (og hef þar af leiðandi lítið skemmtilegt að segja) held ég bara að maður hætti þessu í bili. Aldrei að vita nema maður verði mættur aftur til Koben í sumar eða bara Asíu....pæling
bjó annars til svona myspace.com/valajonsdottir....verð eitthvað þar í staðin
for the last time....over and out
Posted at 7.9.06 by Völu
Wednesday, August 30, 2006
Það er komið að þessu, síðasti dagurinn í Kaupmannahöfn í bili...sorgmædd en samt glöð, gaman en samt súrt....erfitt að pakka svona mikið og kveðja alla. Búin að taka kveðjuna í rispum...familí í seinustu viku, krakkarnir og vinnan í öl á mánudaginn, og svo stelpurnar á eftir á Roberts - sætasta kaffihúsi í heimi sem á líka skilið smá kveðjustund - og svo Óskar minn á vellinum á morgun hvernig sem við ætlum nú að fara að því...
Á eftir að sakna allra hérna svo ótrúlega mikið...kem því bara ekki í orð! komin á klakann á morgun .... en kem fljótt hingað heim í heimsókn!
látum það nægja í bili....
Posted at 30.8.06 by Völu
Friday, August 25, 2006
Góðan daginn. Gullfallegur dagur hér í höfninni - sól og blíða - allir að slá grasið eða bora eitthvað eins og alltaf a sumrin svo það er svona nýslegið - gras - lykt allssstaðar í kringum blokkina...þetta á maður bara eftir að finna í nokkra daga í viðbót...
seinasti föstudagurinn minn í Koben í bili, sad but true....en maður eyðir honum ekki vælandi heima - neineinei - er að fara í "Tour de gård" með Ágústu og stelpunum á Amager kollegíi...svona 80's þema þar sem allir rölta á milli fælles húsana og fá drykk og eitthvað svona voða sniðugt!! verst að ég er búin að pakka öllu dótinu mínu svo ég verð bara að ræna einhverju´úr skápunum á kollegíinu.....ekki mikið 80's hér...
Óskar er nebblega að fara í 100 ára afmæli Nordisk Film partý...snæðir með krónprinsinum og svoleiðis fínerí - 1200 manns og makar því ekki leyfðir...ef ég hitti hann niðrí bæ í outfittinu fá þeir kannski rök fyrir því að makar séu ekki leyfðir í þessi stóru partý;) hehe
annars bara ætla ég að drífa mig út í sólina svo ég verði ekki alveg eins og draugur þegar ég kem heim!
until next time
Posted at 25.8.06 by Völu
Wednesday, August 23, 2006
jújú, við vitum að við erum frekar spes hérna Íslendingarnir í Köben en það er bara ekkert jafn gott og ekta íslenskur matur þegar maður getur sjaldan nálgast hann! svo það eru sko bjúgu, hvít sósa og ora baunir í kvöld!!! Sigga, Andri, Þórir og Kobbi sem var að flytja út eru að koma í dinnerinn og jafnvel smá spil...
og auðvitað verður maður að tilkynna það að Nína vann gífurlega spennandi keppnina sem var kynnt hér fyrir nokkrum dögum, vil óska henni innilega til hamingju með sigurinn

og takk æðislega.....
annars er maður búinn að pakka öllu! vægast sagt sjokk ... enda vissi ég það vel og gerði það þess vegna svona löngu áður en ég fer...nú er það bara að finna nógu mikið af fólki sem er að fara á klakann af því að ég er örugglega með svona 100kg hérna heima í milljón töskum....hehe....
annars er sumarið bara búið hérna úti sýnist mér, rigning - þrumur og eldingar flesta daga og sólin voða lítið að kíkja í heimsókn. Svo söm fínt að fá smá upphitun áður en maður kemur á klakann þar sem veðrið er búið að vera svo ömó.....
Posted at 23.8.06 by Völu